VETRAMIL® HÚÐSJAMPÓ 150ml

Spyrðu spurningu

Spyrðu spurningu

* Nauðsynlegir reitir

Vetramil húðsjampó er sérhannað fyrir hunda með viðkvæma húð. rustigið í sjampóinu passar við hærra rustig hundahúðar, án þess hafa áhrif á náttúrulega fitu í feldinum. Sjampóið inniheldur hunang sem er ríkt af ensímum og andoxunarefnum. Róandi og rakagefandi sjampó er mjög mikilvægt fyrir algeng húð- og feldvandamál. Vetramil húðsjampóið samanstendur af mildum sápum sem ekki eru basískar (hátt pH gildi) þar sem varan inniheldur ekkert alkalín og því þolir viðkvæm húð sjampóið vel. Viðbætt aloe Vera þykkni er rakagefandi og laxerolía bætir feld og veitir gljáa.

Pappaaskja:
Vetramil húðsjampó, flaska með loki og mæliglas, 150 ml.

Fyrning:
Vörurnar hafa þriggja ára geymsluþol frá framleiðsludegi. Geymsluskilyrði eru milli 4° og 30°C.

Gæði
Vetramil húðsjampó inniheldur eingöngu hrein og hágæða innihaldsefni. Framleiðslan fer fram samkvæmt stöðluðu gæðakerfi Bfactory Health Products B.V.

Lyfjafræðileg efni
Vetramil vörur innihalda ekki lyfjavirk efni.

Leiðbeiningar um notkun
Vetramil húðsjampó er hentugt fyrir reglulega notkun á fullorðna hunda og hvolpa sem eru minnsta kosti 6 vikna gamlir. Notið lokið til að mæla 2 teskeiðar af sjampói og bætið við 2 lítrum af volgu vatni. Blandið vel og dreifið sjampóinu jafnt yfir allan feldinn. Nuddið vel inn í feldinn og skolið svo vel með nægu af hreinu volgu vatni.

Fyrir hvaða hunda hentar sjampóið?
Vetramil húðsjampó hefur verið þró sérstaklega fyrir hunda með viðkvæma húð. Vetramil húðsjampóið inniheldur engin litarefni eða paraben. Sjampóið inniheldur lítið magn af ilmefnum sem ekki eru ofnæmisvaldandi, til við bæta lykt feldsins. Sjampóið er sérstaklega þróað fyrir hunda en hentar líka köttum og hestum. 

Recently Viewed Products