Algengar spurningar
Hvað er svona sérstakt við hunangið í Vetramil®?
Vetramil inniheldur hunang sem er einstaklega ríkt af náttúrulegum hunangsensímum og andoxunarefnum. Þessi einstaka samsetning róar viðkvæma og hrjúfa húð. Lágt sýrustig hunangsins styður við heilbrigða húð og skapar hagstætt umhverfi fyrir húðina.
Eru barksterar eða sýklalyf í Vetramil®?
Nei, Vetramil inniheldur engin lyfjavirk efni.
Geta dýr verið með ofnæmi fyrir Vetramil®?
Vetramil inniheldur hvorki rotvarnarefni né skilur eftir sig leifar. Það eru engin innihaldsefni í Vetramil sem dýr eru þekkt fyrir að hafa ofnæmi fyrir.
Er Vetramil® klístrað?
Já, hunang er náttúrulega klístrað – en græðandi eiginleikar Vetramil byggja m.a. á háu hlutfalli ensímríks hunangs. Með því að blanda hunanginu við olíukenndan smyrslagrunn verður áferðin þægileg og auðveld í notkun.
Er líklegt að dýrin sleiki Vetramil® af sér?
Vetramil inniheldur sérstakar ilmkjarnaolíur sem ætlað er að fæla dýrin frá því að sleikja vöruna af sér.
Af hverju eru ilmkjarnaolíur í Vetramil®?
Þær draga úr líkum á að dýrin sleiki vöruna af sér, gefa smyrslinu góðan ilm og stuðla jafnframt að bættri húðheilsu.
Hvað eru ilmkjarnaolíur?
Ilmkjarnaolíur eru rokgjarnar olíur sem eru unnar úr plöntum. Þær eru einnig þekktar sem ilmolíur eða eterískar olíur.
Getur Vetramil® valdið sviða eða pirringi á viðkvæmri húð?
Við getum ekki spurt dýrin, en við getum byggt á eigin reynslu. Ef þú berð Vetramil á hrjúfa húð hjá þér sjálfri/sjálfum finnurðu strax hversu róandi áhrifin eru.
Má ég nota Vetramil® á fylfulla hryssu?
Já, Vetramil inniheldur engin lyfjavirk efni og er því öruggt til notkunar á fylfullar hryssur.
Gæti Vetramil® innihaldið Clostridium-bakteríugró?
Nei, hunangið sem notað er í Vetramil er dauðhreinsað með aðferð sem tryggir að enginn lifandi clostridium gró séu til staðar í vörunni.
Inniheldur Vetramil® Te-tré olíu?
Nei, Vetramil inniheldur ekki Te-tré olíu (Melaleuca alternifolia). Það inniheldur hins vegar Niaouli olíu (Melaleuca quinquenervia), sem er mild bakteríudrepandi olía með mun lægri styrk virkra efna (svo sem terpena) en Te-tré olía.