VETRAMIL® ÞÓFAVAX 45/120g
Vetramil þófavax er sérstaklega samsett til að vernda þófa á hundum. Hundaþófar geta verið undir miklu álagi hvort sem er að sumri eða vetri. Ís, snjór, salt og gróft undirlendi sem dæmi, geta valdið þurrki og sársaukafullum sprungum. Vetramil þófavaxið er samsett úr náttúrulegum efnum sem vernda þófana gegn áhrifum erfiðra aðstæðna. Hátt hluttfall ensíma í hunanginu virka mjög græðandi á sprungur og býflugnavaxið myndar vatnsfráhrindandi varnarlag sem hvoru tveggja stuðla að heilbrigðum þófum. Þófavaxið er beiskt á bragðið og kemur í veg fyrir að það verði sleikt af.
Pappaaskja:
Vetramil þófavax, krukka 45 g / 120 g
Fyrning:
Vörurnar hafa þriggja ára geymsluþol frá framleiðsludegi. Geymsluhitastig skal vera á bilinu 4°C til 30°C.
Gæði:
Vetramil Paw Wax inniheldur eingöngu hrein og hágæða innihaldsefni. Framleiðslan fer fram samkvæmt vottuðu gæðakerfi Bfactory Health Products B.V.
Lyfjavirk efni:
Vetramil vörur innihalda engin lyfjavirk efni.
Leiðbeiningar um notkun:
Vetramil þófavax verndar þófa gegn meiðslum sem geta orðið vegna erfiðra aðstæðna, svo sem heits malbiks, snjóa og íss.Innandyra hentar vaxið sérstaklega vel til að draga úr líkum á að hundurinn renni til á sléttum gólfum þar sem vaxið eykur grip þófana.
Til að ná sem bestum árangri, skal bera þunnt lag af vaxi á hvern þófa nokkrum sinnum á dag.