VETRAMIL® SMYRSLI 10/30/100g
Vetramil smyrsli er sérstaklega hannað fyrir dýr með hrjúfa og pirraða húð. Vetramil hunangssmyrsli inniheldur hunang með miklu magni náttúrulegra ensíma. Hunang er vel þekkt fyrir að hafa jákvæð áhrif á heilbrigði húðar. Ensím og náttúrulegt sýrustig hunangsins stuðla að hreinni húð og örva bata húðarinnar. Andoxunarefni í hunanginu hafa róandi áhrif á viðkvæma og pirraða húð. Vetramil hunangssmyrsli inniheldur einnig sérvaldar ilmolíur sem styðja við heilbrigða húð og gefa smyrslinu mildan og góðan ilm.
Vetramil smyrsli hentar öllum dýrum.
Til notkunar fyrir:
Öll dýr.
Pappaaskja:
Vetramil Smyrsli, túpa 10 grömm / 30 grömm
Fyrning:
Vörurnar hafa þriggja ára geymsluþol frá framleiðsludegi. Geymsluhitastig skal vera á bilinu 4°C til 30°C.
Gæði:
Í Vetramil smyrsli eru eingöngu notuð hrein og hágæða innihaldsefni. Framleiðslan fer fram samkvæmt GMP stöðlum (Good Manufacturing Practice) og undir eftirliti gæðakerfi Bfactory Health Products B.V.
Lyfjavirk efni:
Vetramil vörur innihalda engin lyfjavirk efni.
Leiðbeiningar um notkun:
Vetramil er áhrifaríkt smyrsli sem hentar öllum dýrum, óháð stærð eða tegund. Smyrslið styður við náttúrulega endurhæfingu húðarinnar og róar ert húðsvæði. Ef þörf er á má setja sárabindi yfir smyrslið. Örugg notkun er 1–2 sinnum á dag.